Íbúafundur um ljósleiðaravæðingu í dreifbýli
14.03.2017
Sveitarfélagið Skagafjörður boðar til íbúafundar fimmtudaginn 16. mars kl. 17:00 í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð.
Á fundinum verða kynntir styrkir og framtíðarlagnir ljósleiðara í dreifbýli Skagafjarðar ásamt því að farið verður yfir hvað er búið og hvar á eftir að tengja.
Haraldur Benediktsson, alþingismaður og formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs mætir á fundinn.
Allir velkomnir.