Fara í efni

Íþróttahúsið á Sauðárkróki auglýsir eftir starfsmanni

28.08.2017

 Íþróttahúsið á Sauðárkróki auglýsir eftir starfsmanni

 

Upphaf starfs: 18. september 2017 eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður íþróttamannvirkis.

Lýsing á starfinu: Starf starfsmanns íþróttamannvirkis felst m.a. í öryggisgæslu við sjónvarpsskjá, eftirlit með íþróttasal og almennum þrifum á sal og klefum. Starfið felur í sér mikil samskipti við börn og fullorðna.

Hæfniskröfur:  Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, þjónustulipurð og hafi metnað til að láta gestum líða vel. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi. Reynsla er æskileg. Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2017

Nánari upplýsingar: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála, í síma 660-4639 eða valdi@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.