Íþróttamaður Skagafjarðar 2022
Körfuknattleiksmaðurinn Pétur Rúnar Birgisson var á dögunum valinn Íþróttamaður Skagafjarðar 2022. Lið meistaraflokks karla körfuknattleiksdeildar Tindastóls var valið lið ársins og Baldur Þór Ragnarson, Helgi Freyr Margeirsson og Svavar Atli Birgisson hlutu titilinn þjálfarar ársins en þeir þjálfuðu meistaraflokk karla Tindastóls í körfuknattleik sem lenti í 2. sæti eftir ævintýralega úrslitarimmu deildarkeppninnar sl. vor.
Á heimasíðu UMSS má sjá eftirfarandi samantekt, en það er UMSS sem heldur utan um valið:
„Íþróttamaður Skagafjarðar árið 2022 fór fram þann 28. desember í Ljósheimum.
Gestir gengu inn í salinn undir spil og söng Eysteins Guðbrandssonar. Gunnar Þór Gestsson formaður bauð gesti velkomna og fékk með sér Þorvald Gröndal ritara stjórnar Ungmennasambandins til að afhenda Hvatningarverðlaun UMSS.
Í ár voru afhent Hvatningarverðlaun síðustu þriggja ára. En árið 2020, voru fimmtán íþróttaiðkendur á aldrinum 12 - 17 ára tilnefndir af aðildarfélögum UMSS það ár. Hvatningarverðlaunin eru veitt iðkendum sem eru áhugasamir, með góða ástundun, sýna góða hegðun innan vallar sem utan, eru góðir félagar og teljast vera góð fyrirmynd annara unglinga.
Golfklúbbur Skagafjarðar - Tómas Bjarki Guðmundsson og Una Karen Guðmundsdóttir
Hestamannafélagið Skagfirðingur - Kristinn Örn Guðmundsson og Þórgunnur Þórarinsdóttir
Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári - Kristinn Örn Guðmundsson og Herdís Lilja Valdimarsdóttir
Ungmennafélagið Neisti - Sævar Snær Birgisson og Marta Birna Eiríksdóttir
Ungmennafélagið Tindastóll
Júdódeild - Konráð Jónsson og Fjóla Indíana Sólbergsdóttir
Frjálsíþróttadeild – Stefanía Hermansdóttir
Knattspyrnudeild – Einar Í. Sigurpálsson og Margrét Rún Stefánsdóttir
Körfuknattleiksdeild – Örvar Freyr Harðarson og Marín Lind Ágústsdóttir
Þá voru veitt Hvatningarverðlaun UMSS 2021, en það ár voru 12 íþróttaiðkendur á aldrinum
12 - 17 ára tilnefndir af aðildarfélögum UMSS.
Golfklúbbur Skagafjarðar - Brynjar Már Guðmundsson og Dagbjört Sísí Einarsdóttir
Hestamannafélagið Skagfirðingur - Sveinn Jónsson og Ólöf Bára Birgisdóttir
Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári - Daníel Smári Sveinsson og Bryndís Erla Guðmundsdóttir
Ungmennafélagið Tindastóll
Badmintondeild – Emma Katrín Helgadóttir
Frjálsíþróttadeild – Amelía Ýr Samúelsdóttir
Knattspyrnudeild – Bragi Skúlason og Magnea Petra Rúnarsdóttir
Körfuknattleiksdeild – Bogi Sigurbjörnsson og Rebekka Hólm Halldórsdóttir
Að lokum voru veitt Hvatningarverðlaun 2022 og voru 19 ungir íþróttamenn tilnefndir;
Golfklúbbur Skagafjarðar – Markús Máni Gröndal og Dagbjört Sísí Einarsdóttir
Hestamannafélagið Skagfirðingur – Alexander Leó Sigurjónsson og Fjóla Indíana Sólbergsdóttir
Ungmenna og Íþróttafélagið Smári - Halldór Stefánsson og Bríet Bergdís Stefánsdóttir
Ungmennafélagið Neisti - Björn Austdal Sólbergsson, Valgerður Rakel Rúnarsdóttir og Greta Berglind Jakobsdóttir
Ungmennafélgið Tindastóll
Badmintondeild – Emma Katrín Helgadóttir
Frjálsíþróttadeild – Hafþór Ingi Brynjólfsson og Efemía Ösp Rúnarsdóttir
Júdódeild - Freyr Hugi Herbergsson og Jo Althea Sandoval Mertola
Knattspyrnudeild - Hilmar Örn Helgason og Hulda Þórey Halldórsdóttir
Körfuknattleiksdeild – Einar Í. Sigurpálsson og Fanney María Stefánsdóttir
Skíðadeild – Lára Sigurðardóttir
Þá var komið að því að veita viðurkenningar til aðila sem stunda eða þjálfa hjá aðildarfélögum UMSS fyrir landsliðsval/þátttöku hjá sérsamböndum ÍSÍ árið 2022.
- Alex Arnarson körfuknattleikssamband Íslands
- Eyrún Ýr Pálsdóttir Landssamband Hestamannafélaga
- Friðrik Hrafn Jóhannsson landsliðsþjálfari körfuknattleikssamband Íslands
- Ísak Óli Traustason Frjálsíþróttasamband Íslands
- Orri Már Svavarsson Körfuknattleikssamband Íslands
- Sigtryggur Arnar Björnsson Körfuknattleikssamband Íslands
- Sigurður Arnar Björnsson landliðsþjálfari Frjálsíþróttasamband Íslands
- Sigurður Gunnar Þorsteinsson Körfuknattleikssamband Íslands
- Stefán Jón Ólafsson Skíðasamband Íslands
Þá var komið að því að veita styrk úr Afreksmannasjóði UMSS, átta aðilar sóttu um í ár og fengu þau öll úthlutað úr sjóðnum samkvæmt ákvörðun stjórnar hans. Í stjórn sjóðsins sitja Gunnar Þór Gestsson, Guðrún Helga Tryggvadóttir og Ómar Bragi Stefánsson.
- Andrea Maya Chirikadzi
- Axel Arnarson
- Björk Ingólfsdóttir
- Ísak Óli Traustason
- Margrét Rún Stefánsdóttir
- Orri Már Svavarsson
- Stefanía Hermansdóttir
- Þórgunnur Þórarinsdóttir
Formaður aðalstjórnar Ungmennafélags Tindastóls, Guðlaugur Skúlason tilkynnti að Pétur Rúnar Birgisson hafði verið valinn íþróttamaður Tindastóls árið 2022. Tekið var stutt kaffihlé, þar sem Eysteinn tók upp þráðinn frá því að athöfnin hófst og söng fyrir okkur nokkur jólalög. Eftir hlé var komið að því að tilkynna val á liði ársins.
Þrjú lið voru tilnefnd; Karlasveit Golfklúbbs Skagafjarðar, Meistaraflokkur kvenna knattspyrnudeild Tindastóls og Meistaraflokkur karla körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Titilinn hlaut Meistaraflokkur karla körfuknattleiksdeildar Tindastóls með 84 stig. Meistarafl.kvk. í knattspyrnu hlaut 67 stig og Karlasveit GSS hlaut 47 stig.
Sjö þjálfarar (teymi) voru tilnefnd í ár, og hlaut þríeykið Baldur Þór Ragnarson, Helgi Freyr Margeirsson og Svavar Atli Birgisson titilinn í ár en þeir þjálfuðu meistaraflokk karla í körfuknattleik sem lenti í 2. sæti í einni af bestu úrslitar rimmu sem átti sér stað í sl. vor. Fengu þeir alls 54 stig, í 2. sæti varð Halldór "Donni" Jón Sigurðsson með 43 stig og 3. sæti hlaut Jóhanna Heiða Friðriksdóttir með 39. stig.
Þá var komið að Íþróttamanni Skagafjarðar 2022. Tilnefndir voru 5 einstaklingar, Anna Karen Hjartardóttir kylfingur, Guðmar Freyr Magnússon hestamaður, Ísak Óli Traustason frjálsíþróttamaður, Jónas Aron Ólafsson knattspyrnumaður og Pétur Rúnar Birgisson körfuknattleiksmaður.
Íþróttmaður Skagafjarðar 2022 er Pétur Rúnar Birgisson, en hann hlaut 72 stig.
Í 2. sæti varð Ísak Óli Traustason með 56 stig og í 3. sæti Anna Karen Hjartardóttir með 37 stig.“
Sveitarfélagið óskar öllu þessu afreksfólki til hamingju með glæsilegan árangur!