Fara í efni

Jólavakan á Hofsósi í kvöld

15.12.2016
Hofsós

Jólavaka Grunnskólans austan Vatna verður haldin í Höfðaborg á Hofsósi í kvöld, fimmtudaginn 15. desember kl. 20.30.

Kaffi, smákökur og  fjölbreytt dagskrá frá nemendum. 

Hátíðarræðu flytur Þuríður Þorbergsdóttir bóndi í Glaumbæ. Söngvari kvöldsins er Sigvaldi Helgi Gunnarsson sem sér um að fylla hjörtun af sönnum jólaanda.

Aðgangseyrir er 1800 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. 
Tekið er við greiðslukortum.

Nemendafélag Grunnskólans austan Vatna hlakkar til að sjá sem flesta í Höfðaborg í kvöld.