Laus staða leikskólakennara á leikskólanum Birkilundi í Varmahlíð
06.02.2013
Leikskólinn Birkilundur óskar eftir að ráða Leikskólakennara í 100% stöðu tímabundið frá 15. mars til 4. Júlí 2013.
Umsóknarfrestur er til 15. Febrúar 2013
Skila skal rafrænum umsóknum helst í íbúðargátt sveitarfélagsins eða á heimasíðunni
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Arnljótsdóttir leikskólastjóri í síma 453-8215
Laun samkv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna FL.
Í Birkilundi er unnið með SMT skólafærni og Stig af stigi.
Birkilundur er tveggja deilda leikskóli. Þar eru 36 börn á aldrinum 1-6 ára.