Laus störf við leikskólann Birkilund í Varmahlíð
Laus störf við leikskólann Birkilund í Varmahlíð frá 10. ágúst 2015
Leikskólakennari óskast í 100% stöðu.
Laun samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna FL.
Staða við ræstingu 2 klst á dag.
Innifalið í starfinu auk ræstingar er frágangur í eldhúsi og þvottahúsi. Vinnutími 15:30-17:30.
Laun samkv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn leikskólastjóri í síma 453-8215 eða í netfanginu birkilundur(hja)skagafjordur.is .
Umsóknarfrestur er til 21. maí.
Skila skal rafrænum umsóknum á www.skagafjordur.is (störf í boði)
Í Birkilundi er unnið með SMT skólafærni og Stig af stigi.
Birkilundur er í samstarfsverkefni með Varmahlíðarskóla þar sem áhersla er lögð á félagsleg samskipti.
Birkilundur er tveggja deilda leikskóli. Þar eru 35 börn á aldrinum 1-6 ára.