Laust starf aðstoðarmanns verkstjóra í þjónustumiðstöð á Hofsósi
12.05.2014
Veitu- og framkvæmdasvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir umsóknum í starf aðstoðarmanns verkstjóra þjónustumiðstöðvar á Hofsósi.
Leitað er eftir ábyrgðarfullum, duglegum og stundvísum einstaklingi. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi bílpróf.
Sótt er um starfið á heimasíðu sveitarfélagsins.
Ráðið verður í starfið sem fyrst. Ráðningartími er maí til september.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Gunnar Pétursson, verkstjóri, s: 894-7466, ahusgp@skagafjordur.is.