Laust starf forstöðumanns Skammtímavistunar
Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir eftir umsóknum um starf forstöðumanns Skammtímavistunar á Sauðárkróki.
Upphaf starfs: Frá 16. ágúst eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall: 100% framtíðarstarf.
Lýsing á starfinu: Forstöðumaður ber ábyrgð á starfs-, þjónustu- og rekstraráætlunum stofnunar í samráði við yfirmenn. Hann ber einnig ábyrgð á samskiptum við aðstandendur og eftir atvikum þjónustustofnanir.
Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun í þroskaþjálfafræði, félagsráðgjöf, iðjuþjálfun, kennslufræði, sálfræði eða aðra sérmenntun sem nýtist í starfi með fötluðu fólki.
Reynsla og þekking í faglegri og rekstrarlegri stjórnun, áætlanagerð, rekstri, starfsmannahaldi og daglegri stjórnun er æskileg.
Viðkomandi þarf að hafa góða vitund fyrir sjálfum sér, ríka ábyrgðartilfinningu, virðingu í mannlegum samskiptum, tilbúinn að tileinka sér nýjar hugmyndir og hafa metnað í starfi.
Vinnutími: Dagvinna.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Starfsheiti: Forstöðumaður.
Yfirmaður: Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri.
Frekari upplýsingar gefur Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir í síma 455-6000 eða á gretasjofn@skagafjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2016
Sótt er um á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.