Leikskólinn Ársalir auglýsir eftir starfsmanni til afleysinga
28.08.2013
Okkur bráðvantar starfsmann til afleysinga strax
Um er að ræða tímabundna ráðningu frá 2. sept.-11. okt. n.k.
Vinnutíminn er 8:15-16:15
Áhugasamir hafi samband við Önnu Jónu Guðmundsdóttur í síma 455 6090 eða 899 1593.
Sækja skal um með rafrænni umsókn sem er í Íbúagátt sveitarfélagins, eða hér
Umsóknarfrestur er til 2. sept 2013
Leikskólinn Ársalir er átta deilda framsækinn leikskóli með 155 börnum á aldrinum 1-6 ára. Við hann starfa 44 starfsmenn og áherslur í starfinu eru lífsleikni, tákn með tali og SMT.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Skagafjarðar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.