Lestur úr nýjum bókum
18.11.2016
Miðvikudagskvöldið 23. nóvember næstkomandi kl 20 verður lesið úr nýjum bókum í Safnahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki. Það koma fjórir rithöfundar í heimsókn og lesa úr nýútkomnum bókum sínum.
Að þessu sinni koma Bjartmar Guðlaugsson sem les úr bók sinni Þannig týnist tíminn, Davíð Logi Sigurðsson úr Ljósin á Dettifossi, Sigríður Hagalín Björnsdóttir úr bók sinni Eyland og Stefán Máni en hans nýjasta bók er Svarti galdur.
Héraðsbókasafnið býður að venju upp á jólate og smákökur.