Lokaáfangi á mælavæðingu á Sauðárkróki stendur yfir
06.03.2025
Tilkynning frá Skagafjarðarveitum
Núna stendur yfir lokaáfangi á mælavæðingu á Sauðárkróki.
Búið er að setja upp mæla í Hlíðar- og Túnahverfi ásamt fyrirtækjum og hafinn er lokaáfanginn að því að setja upp mæla í útbænum (gamla bænum) og stefnan er að ljúka því fyrir vorið. Núna verða mælar settir upp óháð því í hvað ástandi húskerfin eru. Starfsmenn Skagafjarðarveitna koma til með að vera í sambandi við húseigendur á næstu dögum og vikum til að setja upp mæla.
Endilega sendið á okkur í síma eða á netfang, upplýsingar um tengilið: 455-6200 / 894-1938 / 893-1904, skv@skv.is / gbr@skv.is.
Við viljum endilega hvetja ykkur til að vera í sambandi við pípulagningameistara til að fara yfir húskerfin hjá ykkur.
Bestu þakkir,
Skagafjarðarveitur