Menntabúðir um tækni í skólastarfi
Það var fjölmennur hópur áhugafólks um skólamál sem lagði leið sína í Árskóla síðastliðinn þriðjudag þar sem blásið hafði verið til Menntabúða um tækni í skólastarfi. Menntabúðir er viðburður þar sem fólk kemur saman til þess að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Frumkvöðlar Menntabúða í Skagafirði eru þau Ingvi Hrannar Ómarsson, Margrét Björk Arnardóttir og Kristján Bjarni Halldórsson en þau eiga það sameiginlegt að vera mikið áhugafólk um tækni í skólastarfi og skólamál almennt.
Að þessu sinni var boðið upp á átta málstofur þar sem þátttakendum gafst kostur á að prófa, ræða og upplifa. Í málstofunum var fjallað um Nearpod, vendikennslu, Kahoot, eTwinning, FabLab, tækni í sérkennslu, tækni og tónlist og Ipad með yngri börnum. Málstofurnar voru fjölbreyttar og áhugaverðar og greinilegt að skólafólk í Skagafirði hefur mikið fram að færa þegar tækni í skólastarfi er annars vegar. Undirbúningshópurinn var ánægður með þátttökuna og hefur fullan hug á að skipuleggja fleiri slíka viðburði.
Allar upplýsingar um Menntabúðirnar má finna á heimasíðu viðburðarins www.tackk.com/menntabudir