Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra

27.09.2024

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2025.

  • Atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir
  • Verkefnastyrkir á menningarsviði
  • Stofn- og rekstrarstyrkir á menningarsviði

Á heimasíðu SSNV er að finna úthlutunarreglur, matsblað og ýmsar leiðbeiningar við gerð umsókna. Góð umsókn eykur möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðum svo mikilvægt er að vanda vel til verka og byrja frekar fyrr en seinna að vinna umsóknina. Starfsmenn SSNV eru ætíð reiðubúnir til aðstoðar og hægt er að finna upplýsingar um ráðgjafa hér.

Umsóknarfrestur er til kl. 16 þann 4. nóvember nk.

Starfsmenn SSNV verða með viðveru á öllum starfsstöðvum næstu vikurnar, þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna, veittar upplýsingar um styrkmöguleika, auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.

Sé óskað eftir umsögn eða aðstoð frá sveitarfélaginu vinsamlegast hafið samband við verkefnastjóra atvinnu-, menningar- og kynningarmála:
Heba Guðmundsdóttir - heba@skagafjordur.is - 455 6000.
Sigfús Ólafur Guðmundsson - sigfusolafur@skagafjordur.is - 455 6000.

Við hvetjum öll þau sem sitja á hugmyndum að athuga möguleikann á styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.