Fara í efni

Óskað eftir tilboðum í Laugaveg 17, Varmahlíð.

10.01.2020
Fasteignin Laugavegur 17 í Varmahlíð

Sveitarfélögin í Skagafirði bjóða til sölu fasteignina við Laugaveg 17, Varmahlíð, steypt einbýlishús á tveimur hæðum, byggt árið 1980. Eignin er almennt í sæmilegu ástandi að utan, uppgerð að mestu leyti að innan. Efri hæð er 113,6 m2 og neðri hæð er 60 m2.


Sveitarfélögin í Skagafirði óska eftir tilboðum í eignina, tilboðsfrestur er til kl. 14 þann 21. janúar n.k. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Fasteignasölu Sauðárkróks að Sæmundargötu 1 (agust@krokurinn.is) þar sem fást frekari upplýsingar.

Sjá nánar um eignina og fleiri myndir hér http://krokurinn.is/eign/id/?id=137510