Ráðgjafi í málefnum fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra
Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir starf ráðgjafa í málefnum fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra laust til umsóknar. Óskað er eftir umsækjendum með háskólamenntun í þroskaþjálfafræði.
Upphaf starfs: Frá 16. ágúst eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall: 50% framtíðarstarf.
Lýsing á starfinu: Ráðgjafi sinnir ráðgjöf, fræðslu, snemmtækri íhlutun og stuðningi við þjónustunotendur. Viðkomandi sinnir einnig handleiðslu og stuðningi fyrir starfsmenn.
Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun í þroskaþjálfafræði. Reynsla af ráðgjöf, faglegri stefnumótun og innleiðingu nýjunga er æskileg. Viðkomandi þarf að hafa góða vitund fyrir sjálfum sér, ríka ábyrgðartilfinningu, virðingu í mannlegum samskiptum, tilbúinn að tileinka sér nýjar hugmyndir og hafa metnað í starfi.
Vinnutími: Dagvinna.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Starfsheiti: Ráðgjafarþroskaþjálfi.
Yfirmaður: Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri.
Frekari upplýsingar gefur Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir í síma 455-6000 eða á gretasjofn@skagafjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2016
Sótt er um á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.