Rannveig Sigrún sigraði söngkeppni Friðar
13.12.2016
Söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar Friðar var haldin föstudagskvöldið 9. desember s.l. í menningarhúsinu Miðgarði. Í keppninni í ár voru sex frábær atriði og fór Rannveig Sigrún Stefánsdóttir í 9. bekk Árskóla með sigur af hólmi með flutningi sínum á laginu „Someone like you“ með tónlistarkonunni Adele.
Rannveig mun fara fyrir hönd Friðar í Norður-org, undankeppni söngkeppni Samfés á Dalvík í byrjun næsta árs og keppir þar um að komast í aðalkeppni Samfés í Reykjavík í mars.
Starfsfólk Friðar vill koma þakklæti til skila til allra þeirra sem komu með einhverjum hætti að þessum viðburði með þeim.
Hér má hlusta á upptöku af siguratriðinu frá því á föstudag.