Reikningar sendir út með tölvupósti
Sveitarfélagið getur nú sent út reikninga með tölvupósti til allra sem það kjósa og vill auka við þann fjölda sem velur þann afhendingarmáta á greiðsluseðlum. Greiðsluseðlarnir birtast áfram í heimabönkum eins og verið hefur.
Það kemur fyrir að fólk flytji á milli staða og gleymi að upplýsa um nýtt heimilisfang. Það kostar umstang og margföld póstburðargjöld að koma reikningum þá til skila. Fólki er gjarnara að halda í netföngin sín og þá er einfalt að koma reikningum á réttan stað strax.
Sveitarfélagið mælist til þess að notendur þjónustu sveitarfélagsins sendi sveitarfélaginu netföng sín, svo innheimtan verði skilvirkari. Vinsamlegast sendið tölvupóst á innheimta@skagafjordur.is þar sem fram kemur nafn, kennitala og að óskað sé eftir að fá reikninga framvegis í tölvupósti.