Rotþróarlosun
07.08.2018
Sveitarfélagið Skagafjörður mun standa fyrir losun rotþróa á næstkomandi vikum. Svæðið sem losunin nær til er frá Svartárdal, Austur og Vesturdal að Sauðárkróki.
Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðfinnanlegar og opnanlegar.
Ef eigendur hafa athugasemdir fram að færa vinsamlegast komið þeim á framfæri á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455 6000 eða á netföngin ipi@skagafjordur.is og indridi@skagafjordur.is
Veitu- og framkvæmdasvið.