Fara í efni

Rotþróarlosun

29.05.2024

Sveitarfélagið Skagafjörður mun standa fyrir losun rotþróa á næstkomandi vikum.

Svæðið sem losunin nær til er frá Svartárdal, Austur og Vesturdal, um vestanverðan Skagafjörð að Sauðárkróki.

Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja aðgengi losunarbíls að rotþróm og að þær séu auðfinnanlegar og opnanlegar. Athygli er vakin á því að aukagjald er rukkað fyrir endurkomu. Eins er rukkað komugjald ef að tæmingaraðila er vísað frá á staðnum.

Ef eigendur hafa athugasemdir fram að færa og/eða vilja afþakka þjónustuna, vinsamlegast komið þeim á framfæri til Ráðhússins á Sauðárkróki í síma 455 6000 eða á netfangið gunnarpall@skagafjordur.is.