Sæluviku 2020 aflýst
02.09.2020
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd ákvað á fundi sínum í dag að aflýsa Sæluviku 2020 sem fara átti fram dagana 27. september til 3. október. Vegur þyngst í þeirri ákvörðun hertar sóttvarnaraðgerðir almannavarna og ekki fyrirséð hvenær þeim verður aflétt.
Þrátt fyrir að Sæluviku 2020 hafi verið aflýst var ákveðið að veita Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2020 en þau hafa síðustu ár verið veitt á setningu Sæluviku. Verður auglýst eftir tilnefningum fljótlega.