Fara í efni

Samninganefndir funda hjá ríkissáttasemjara

21.11.2024

Samninganefndir kennara og ríkis og sveitarfélaga funda áfram hjá ríkissáttasemjara í dag, en er það þriðji dagurinn í röð þar sem boðað er til formlegs fundar í kjaradeilunni.

Í dag munu samningsaðilar halda áfram því samtali og vinnu sem hefur farið fram í vikunni. Samninganefnd Sambandsins ítrekar samningsvilja sinn gagnvart leik- og grunnskólakennurum og vonast eftir uppbyggjandi og gagnlegum samtölum á næstu dögum við félögin fimm um þau málefni sem standa út af.

Samninganefndir funda hjá ríkissáttasemjara | Samband íslenskra sveitarfélaga