Samþykkt um búfjárhald í þéttbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði er komin í gildi
Ný samþykkt um búfjárhald í þéttbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði sem samþykkt var samhljóða á sveitarstjórnarfundi þann 14. október 2015 hefur tekið gildi. Þeir sem eiga eða hafa í umsjón sinni búfé skulu hafa sótt um búfjárleyfi fyrir 1. apríl 2016. Umsóknum skal skila í móttöku Ráðhússins.
Samþykkt þessi er sett til að tryggja skipulag, stjórn og eftirlit með búfjárhaldi í þéttbýli sveitarfélagsins og koma þannig í veg fyrir ágang á lóðir íbúa og einnig til verndar gróðri. Þeir þéttbýlisstaðir sem samþykkt þessi tekur til eru Sauðárkrókur, Hofsós, Varmahlíð og Steinsstaðir.
Í samþykktinni segir m.a.: Búfjárhald er almennt óheimilt í þéttbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði. Búfjárhald er þó heimilt í þéttbýli í sérstaklega skipulögðum hverfum eða að fengnu sérstöku leyfi landbúnaðarnefndar. Í þessari samþykkt er með búfjárhaldi átt við nautgripa-, hrossa-, svína-, sauðfjár-, kanínu-, geita-, loðdýra- og alifuglahald, sbr. lög nr. 38/2013 um búfjárhald. Heimilt er að halda allt að 10 hænsni á hverri lóð, en hanar eru með öllu bannaðir í þéttbýli í sveitarfélaginu.
Samþykktina og þéttbýlisuppdrætti má sjá hér.
Gjaldskrá vegna útgáfu búfjárleyfa.
Umsóknareyðublöð á Excel og PDF formi.