Fara í efni

Skagafjörður auglýsir eftir rekstraraðila fyrir Menningarhúsið Miðgarð

29.10.2024
Menningarhúsið Miðgarður

Rekstraraðila Menningarhússins Miðgarðs er ætlað að sjá um daglega starfsemi í húsinu, veitingasölu, útleigu, ræstingar og minniháttar viðhald.

Meginhlutverk Menningarhússins Miðgarðs er að vera vettvangur tónlistar. Lögð er áhersla á fjölbreytta og metnaðarfulla tónlistardagskrá. Jafnframt er húsið æfingaraðstaða fyrir tónlistariðkendur í Skagafirði. Í Menningarhúsinu Miðgarði er Stefáns Íslandi sérstaklega minnst með sýningu og munum er tengjast ævistarfi hans. Menningarhúsið Miðgarður er jafnframt markaðssett sem aðstaða fyrir ráðstefnur, fundi, skemmtanir og ýmsa aðra menningarviðburði, svo fremi sem þeir falla að nýtingarstefnu eigenda hússins og starfsemin sé í fullu samræmi við gildandi lög og reglur um skemmtanahald.

Rekstraraðili og eigendur munu vinna eftir sameiginlegri stefnumótun um starfsemi Menningarhússins Miðgarðs, þar sem markmið eru sett um dagskrá, markhópa og markaðssetningu hússins. Í samningi aðila verður kveðið á um gagnkvæm réttindi og skyldur.
Umsækjendur skulu skila upplýsingum um reynslu sína og þekkingu sem nýst gæti við rekstur menningarhúss sem og þeim hugmyndum sem þeir hafa um framtíðarrekstur Menningarhússins Miðgarðs.

Umsóknir skal senda til sveitarfélagsins Skagafjarðar, Ráðhúsi, 550 Sauðárkróki, merkt Miðgarður, eða í tölvupósti á netfangið sigfusolafur@skagafjordur.is, fyrir 11. nóvember 2024.

Nánari upplýsingar veitir Sigfús Ólafur Guðmundsson, verkefnastjóri atvinnu-, menningar og kynningarmála hjá Skagafirði í síma 455 6170 eða í tölvupósti á sigfusolafur@skagafjordur.is.