Fara í efni

Skíðagöngumót í Fljótum 17. apríl

05.03.2014

Á skírdag 17. apríl verður skíðagöngumót í Fljótunum þar sem gengnar verða stuttar vegalengdir í öllum flokkum barna, unglinga og fullorðinna, 3, 5, 10 og 20 km. Keppt verður með hefðbundinni aðferð. Fljótamenn eru þekktir sem afbragðs skíðagöngumenn frá fornu fari og skorar ferðafélagið á allar fjölskyldur, jafnt unga sem aldna, að draga fram skíðin og taka þátt. 

Mótið hefst kl 13:00 en skráning fer fram milli kl 11:30 og 12:30 og brautarskoðun 16. apríl kl 13-15. Mótsgjald greiðist við skráningu 2.000 kr fyrir 16 ára og eldri og 1.000 kr fyrir yngri en mótsstjóri er Birgir Gunnarsson.