Fara í efni

Skólahald í Skagafirði fimmtudaginn 9. janúar 2019

08.01.2020

Stefnt er að því að leik- og grunnskólar Skagafjarðar verði opnir og skólahald með eðlilegum hætti á morgun, fimmtudaginn 9. janúar. Veður og færð verða þó metin að nýju snemma í fyrramálið og foreldrar og forráðamenn barna því beðnir að fylgjast vel með tilkynningum á heimasíðu sveitarfélagins og skólanna og einnig á facebook-síðum þeirra eftir því sem við á.