Skráning strandminja í Skagafirði
04.03.2014
Sumarið 2013 var unnið að skráningu fornminja á austurströnd Skagafjarðar sem eru í mikilli hættu vegna landbrots af völdum sjávar. Síðustu áratugina virðist landbrot hafa aukist verulega en engin heildarúttekt hefur farið fram á þeim fornleifum sem kunna að vera í hættu þess vegna.