Fara í efni

Skráningar í SumarTím

08.06.2017
Mynd af Facebooksíðu SumarTím

Nú er SumarTím farið af stað í Skagafirði og ýmislegt áhugavert  og skemmtilegt í boði fyrir börn 5-12 ára. Skráningar fara fram á sumartim@skagafjordur.is eða í síma 660 4633. 

Námskeiðin eru mánudaga til fimmtudaga og er allur efniskostnaður innifalin nema annað sé tekið fram í námsskeiðslýsingum en þær má nálgast hér. Börnum á Hofsósi stendur til boða að taka þátt í námskeiðunum á Sauðárkróki 12.-23. júní.

Á Facebooksíðu SumarTím er hægt að fylgjast með því þar koma fram allar nýjustu fréttir og upplýsingar sem börn og foreldrar þurfa að vita af.

SumarTím verður á Hólum í 3 vikur í sumar og hefst í næstu viku, skráning á þau námskeið eru á vef UMSS https://umss.felog.is/ þar fer líka fram skráning fyrir allan aldur í fótbolta, á júdónámskeið og golfnámskeið og einnig í siglingar fyrir 13 ára og eldri.