Skrifað undir samninga vegna nýs leikskóla á Hofsósi
Mánudaginn 3. febrúar sl. var skrifað undir verksamning við Uppsteypu ehf. um byggingu viðbyggingar við Grunnskólann austan vatna.
Viðbyggingin, sem rísa mun sunnan við núverandi skólahúsnæði, mun hýsa leikskólann Barnaborg sem nú er í bráðabirgðarhúsnæði á Hofsósi.
Viðbygging er 205,5m2, steypt á einni hæð með flötu þaki, einangrað að utan og klætt með litaðri álklæðningu.
Hönnun var unnin af Úti Inni Arkitektum, Verkfræðistofunni Stoð ehf., TT Hönnun og Verkfræðistofunni Eflu.
Sigfús Ingi Sigfússon sveitastjóri var ánægður við undirritunina: "Það er virkilega ánægjulegt að búið sé að ganga frá samningum um framkvæmdina. Þetta er framkvæmd sem við höfum horft lengi til að hefjist og mun hún stórbæta leikskólaaðstöðu á Hofsósi."
Verklok eru áætluð 1. febrúar 2021.
Hér má sjá teikningar af viðbyggingunni: