Fara í efni

Sögudagur á Sturlungaslóð 16. ágúst

25.02.2014

 

Kl. 14 verður safnast saman í Selvík á Skaga þar sem Helgi Hannesson, leiðsögumaður og framhaldsskólakennari, segir frá Flóabardaga (um 45 mín. akstur frá Króknum)

Á staðnum verða félagar frá Grettistaki með leiki fyrir börnin.

 

Kl. 20 er Ásbirningablót í Kakalaskála í Kringlumýri.. 

Þór Hjaltalín, minjavörður Norðurlands vestra, flytur erindi um höfðingja og hirðmenn. Einar Georg Einarsson, kennari og sagnaþulur, frá Laugarbakka verður með erindi um Guðmund góða.

Bára Grímsdóttir og Chris Foster sjá um tónlistarflutning. Veislustjóri er Sigurður Hansen.

Veitingar í miðaldastíl að hætti Hótels Varmahlíðar.

Miðaverð á blótið er 5.500 kr. Tekið er við pöntunum í síma 453 8170 fyrir kl. 20 föstudaginn 15. ágúst.