Fara í efni

Staða framkvæmda við Sundlaug Sauðárkróks

08.02.2019

Endurbætur á sundlauginni á Sauðárkróki hafa þróast þannig að nú er stefnt  að opnun laugarinnar  fyrri hluta apríl. Lengri lokun núna þýðir að ekki þarf að koma til lengri lokana seinna á verktímanum, þó það gæti þurft að loka einhverja daga. Með þessu er verið að búa öllum þeim sem koma að lauginni betra umhverfi til loka framkvæmda.

Við opnun í apríl verður tekin í notkun hluti af nýju anddyri, lyfta milli 1. og 2. hæðar, nýr kvennaklefi á 2. hæð og endurbætur á gufuklefa á 1. hæð, en hann mun þjóna sem karlaklefi fyrst um sinn.