Fara í efni

Starf í heimaþjónustu laust til umsóknar

24.07.2017

 Fjölskyldusvið auglýsir starf í heimaþjónustu laust til umsóknar

 

Upphaf starfs: 1. september 2017.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.

Starfsheiti: Heimaþjónusta II.

Lýsing á starfinu: Heimaþjónustan veitir aðstoð við þrif og önnur heimilisstörf. Markmið heimaþjónustu er að efla einstaklinginn til sjálfshjálpar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimaþjónustu við sem eðlilegastar aðstæður. Heimaþjónusta er veitt þeim sem geta ekki hjálparlaust séð um heimilishald vegna skertrar getu eins og veikinda, álags, öldrunar eða fötlunar.

Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Menntunarkröfur: Almenn menntun. Bílpróf er kostur.

Hæfniskröfur: Næmur skilningur og hæfni í mannlegum samskiptum. Samviskusemi, frumkvæði, áreiðanleiki og hæfileiki til að bregðast við og taka á óvæntum atvikum. Umsækjandi þarf jafnframt að vera stundvís og heiðalegur.

Launakjör: Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst 2017

Nánari upplýsingar: Gunnar Sandholt, félagsmálastjóri, sandholt@skagafjordur.is, 455-6000.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

                                              

 Heimaþjónusta er þjónustustarf sem unnið er inni á heimili eða daglegu umhverfi þjónustuþega og byggir á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Starfið felst í almennum heimilisstörfum sem notandinn getur ekki leyst af hendi sjálfur og nauðsynlegu liðsinni sem stuðlar að því að auka virkni og rjúfa félagslega einangrun. Öll heimaþjónusta skal veitt af virðingu fyrir notandanum og í samráði við hann.