Fara í efni

Starf í liðveislu er laust til umsóknar

19.03.2018

Starf í liðveislu er laust til umsóknar

 

Tímabil starfs: Frá 9. apríl - 31. ágúst 2018, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Starfshlutfall: 75% starfshlutfall.

Starfsheiti: Félagsleg liðveisla II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar blindan einstakling í nágrenni Varmahlíðar. Starfið felst m.a. í aðstoð við athafnir daglegs lífs og félagslegum stuðningi. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Menntunarkrafa: Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.

Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fötluðu fólki og hefur að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttsemi og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjandi skal hafa náð 18 ára aldri.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti; sigthrudurh@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.

  

Félagsleg liðveisla miðar að því að aðstoða einstakling við athafnir daglegs líf sem og til þátttöku í félagslífi. Markmiðið er að auka þátttöku einstaklings í samfélaginu á sínum forsendum og draga úr félagslegri einangrun.