Fara í efni

Starfsdagur í grunn- og tónlistarskólum á morgun. Leikskólar opnir.

01.11.2020

Vegna hertra sóttvarnaaðgerða sem tóku gildi laugardaginn 31. október verður starfsdagur í grunn- og tónlistarskólum í Skagafirði á morgun, mánudaginn 2. nóvember. Von er á reglugerð um takmarkanir í skólastarfi í kvöld og verður morgundagurinn nýttur til að skipuleggja skólastarf í samræmi við nýja reglugerð. Starfsemi leikskóla í Skagafirði fer fram með eðlilegum hætti á morgun. 

Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum frá sveitarfélaginu.

Eins og áður hefur komið fram verða íþróttamannvirki sveitarfélagsins lokuð til og með 17. nóvember.

Íbúar eru hvattir til að huga vel að eigin sóttvörnum og heilsu. Í Skagafirði er fjöldi gönguleiða og útivistasvæða sem tilvalið er að nýta um þessar mundir.