Starfsmaður óskast í þjónustu við fatlað fólk
Starfsmaður óskast í þjónustu við fatlað fólk
Upphaf starfs: 2. janúar 2018, eða eftir samkomulagi. Um framtíðarstarf er að ræða.
Starfshlutfall: 45% starfshlutfall.
Starfsstöðvar: Suðurgata og Freyjugata.
Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.
Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
Menntunarkröfur: Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.
Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.
Vinnutími: Vaktavinna (ekki næturvaktir).
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 26. desember 2017
Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, í síma 867-9809 eða sigthrudur@skagafjörður.is.
Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, í síma 770-7355 eða ragnheidura@skagafjordur.is.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Karlar sem og konur eru hvattir til að sækja um.