Stóri plokkdagurinn á laugardaginn
22.04.2020
Stóri plokkdagurinn verður haldinn á Degi umhverfisins, laugardaginn 25. apríl nk.
Af því tilefni hvetjum við alla til þess að tína rusl í sínu nærumhverfi. Skemmtileg afþreying fyrir fólk á öllum aldri og kjörið tækifæri til þess að sameina útiveru og hreyfingu.
Taktu þátt í að fegra umhverfið okkar.
Margar hendur vinna létt verk!