Sumar 2018 - Blönduós
Sumarstörf 2018
Heimilið, Skúlabraut, Blönduósi
Tímabil: 1. júní – 31. ágúst 2018.
Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.
Starfsheiti: Matráður III og starfsmaður á hæfingarstöð.
Lýsing á starfinu: Í raun er um tvö störf að ræða. Annars vegar er starfsmaður með yfirumsjón með eldhúsi, sér um matseld (heitan mat) auk þess framreiðsla á mat, frágangur og þrif. Sér einnig um innkaup á matvörum í samráði við forstöðumenn. Hins vegar felst í starfinu aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.
Menntunarkrafa: Gerð er krafa um bílpróf.
Hæfniskröfur: Reynsla af vinnu í eldhúsi/mötuneyti eða sambærilegu starfi er æskileg. Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
Vinnutími: Dagvinna.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2018
Nánari upplýsingar: Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður, arijohann@skagafjordur.is, 893-6673, 452-4960.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.