Sumar 2018 - Frekari liðveisla
Sumarstörf 2018
Frekari liðveisla, Sauðárkróki
Tímabil starfs: 25. maí -25. júlí 2018.
Starfshlutfall: 25% starfshlutfall.
Starfsheiti: Félagsleg liðveisla I.
Lýsing á starfinu: Starfsmaður starfar við frístunda- og félagslega aðstoð við fatlað fólk. Einnig við að leiðbeina þjónustuþegum í daglegu lífi við að auka færni þeirra og sjálfstæði.
Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
Vinnutími: Dagvinna.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2018
Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, sigthrudurh@skagafjordur.is, 455-6082.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.