Sumar 2018 - Heimilið Fellstún
Sumarstörf 2018
Heimilið Fellstúni, Sauðárkróki
Tímabil: 17. maí -25. ágúst 2018.
Fjöldi & starfshlutfall: 5 störf í 50-100 % starfshlutfalli.
Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.
Lýsing á starfinu: Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2018
Nánari upplýsingar: Edda Haraldsdóttir, forstöðumaður, 453-6692, fellstun@skagafjordur.is.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.