Fara í efni

Sumar TÍM

28.05.2024
Það er gaman í Sumar - TÍM. Mynd af Facebook síðu Sumar - TÍM.

Undirbúningur fyrir Sumar -TÍM er nú í fullum gangi.

Sumar - TÍM er fyrir börn fædd 2012 - 2018 og hefst í beinu framhaldi af lokun Árvistar eða þann 3. júní nk. og stendur til föstudagsins 9. ágúst. Höfuðstöð Sumar - Tím er í  B – álmu Árskóla (þar sem 1. og 2. bekkur gengur inn).

Börn þurfa ekki að hafa fasta búsetu í Skagafirði til þess að geta sótt Sumar - TÍM.

Börn í 1.- 4. bekk geta sótt samfellt starf frá kl. 8 – 16 mánudaga - fimmtudaga og kl. 8 - 12 á föstudögum. Boðið upp á gæslu í hádeginu með þeim skilyrðum að börnin hafi með sér nesti og útbúnað að heiman sem til þarf yfir daginn.

Fyrirkomulag gæslunnar verður þannig að hún byrjar kl. 12 þegar flest öll námskeið eru búin og stendur til kl. 13 þegar næstu námskeið byrja. Þar geta krakkarnir borðað nestið sitt og síðan leikið aðeins áður en að næsta námskeið byrjar.

Börnum fædd 2018 sem eru að ljúka við leikskólastig verður boðið að taka þátt í Sumar - TÍM frá 8. júlí - 9. ágúst. Þeim er boðið að koma til okkar og mæta á stök námskeið. Þau hafa ekki kost á því að vera í samfelldu starfi frá 8 – 16.

Skráningar munu fara fram í gegnum vefverslun Sportabler eins og í fyrra. Ekki þarf að skrá börn á námskeið fyrir allt sumarið í upphafi, en það verður líka í boði. Skráningu fyrir hvert og eitt námskeið lýkur ALLTAF á fimmtudeginum í vikunni áður en að námskeiðin byrja. Unnið er að því að opna fyrir skráningar.

Við viljum vekja athygli á því að börn þurfa líka sumarfrí frá skipulögðu starfi og því biðlum við til ykkar kæru forsjáraðilar að taka sumarfrí með börnunum ykkar. Ekki verður í boði að skrá börn á námskeið allar vikurnar hjá okkur. Eins og segir í Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna þurfum við að hugsa hvað það er sem er barninu fyrir bestu og öll börn þurfa sína hvíld.

Hafi barnið þitt einhverjar sérþarfir væri gott að láta starfsfólk Sumar - TÍM vita. Við erum einnig dugleg að taka myndir af starfinu og setja inn á Facebook síðuna okkar. Við biðjum börnin alltaf um leyfi en viljum einnig ykkar leyfi. Ef þið eruð mótfallin því að myndir af barninu ykkar fari inn á síðuna, hafið þá samband.

Drög að dagskrá kemur á Facebook-síðu Sumar TÍM.

Hlökkum til sumarsins með ykkur!

Starfsfólk Sumar-TÍM

 

Hér að neðan eru hlekkir á vefverslun Sportabler fyrir Sumar - TÍM og íþróttaæfingar hjá Tindastóli ásamt hlekk á Facebook síðu Sumar - TÍM. Mikilvægt er að fylgja Facebook síðunni þar sem allar helstu upplýsingar verða birtar þar í sumar. Unnið er að því að setja námskeið inn á Sportabler.

 

Skráning í Sumar - Tím      Skráning á æfingar Tindastóls     Facebook síða Sumar - Tím