Sumarstörf í frístunda- og íþróttamálum
17.02.2016
Fjölbreytt sumarstörf í frístunda- og íþróttamálum eru nú auglýst laus til umsóknar. Störfin sem um ræðir eru í íþróttahúsi, flokkstjórar vinnuskóla, á íþróttavelli, starfsmenn Sumar-Tím og í sundlaugum.
Þess má einnig geta að auglýst er eftir sumarstarfsfólki á sambýlum, þjónustuíbúðum, Iðju, skammtímavistun, liðveislu og heimaþjónustu.
Nánari upplýsingar um öll ofangreind störf má finna hér.