Sumarstörf í sundlauginni í Varmahlíð
Sumarstörf 2017
Fjölskyldusvið: frístunda- og íþróttamál
Framlengdur umsóknarfrestur
Sundlaug Varmahlíðar
Tímabil: Lok maí til loka ágúst, eða eftir samkomulagi.
Fjöldi og starfshlutfall: 2 störf í100% starfshlutfalli.
Starfsheiti: Sundlaugarvörður I.
Lýsing á starfinu: Starfið felst m.a. í öryggisgæslu við sjónvarpsskjá og laug, auk eftirlits með öryggiskerfum, afgreiðsla og baðvarsla.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Reynsla er kostur og björgunarsundpróf er æskilegt.
Vinnutími: Vaktavinna.
Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2017
Nánari upplýsingar: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála, valdi@skagafjordur.is, 660-4639.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.