Sumarstörf: Iðja/dagþjónusta og liðveisla í vinnuverkefnum
Sumarstörf 2017
Fjölskyldusvið - málefni fatlaðs fólks
Framlengdur umsóknarfrestur
Iðja/dagþjónusta
Tímabil: 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.
Fjöldi og starfshlutfall: 1 starf í u.þ.b. 90% starfshlutfalli.
Starfsheiti: Starfsmaður á hæfingarstöð.
Lýsing á starfinu: Í starfinu felst aðstoð við fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á.
Iðja/dagþj - liðveisla í vinnuverkefnum
Tímabil: 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.
FJöldi og starfshlutfall: 1 starf í 20% starfshlutfalli.
Starfsheiti: Starfsmaður á hæfingarstöð.
Lýsing á starfinu: Starfið er þjónustustarf sem felur í sér stuðning við þjónustuþegann á hinum almenna vinnumarkaði.
Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.
Vinnutími: Dagvinna.
Umsóknarfrestur: Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2017.
Launakjör: Störfin henta konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar: Jónína Gunnarsdóttir, forstöðumaður, idja@skagafjordur.is, 453-6853.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.