Sumarstörf - Þjónustumiðstöð og Skagafjarðarveitur
Sumarstörf 2018
Veitu- og framkvæmdasvið
Þjónustumiðstöð/Skagafjarðaveitur á Sauðárkróki
Tímabil: Frá 14. maí til 31 ágúst.
Fjöldi og starfshlutfall: 3 störf í 100% starfshlutfalli.
Starfsheiti: Verkamaður II.
Lýsing á starfinu: Starfar við almenn verkamannastörf, aðallega utanhúss, samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni (verkstjóra/flokkstjóra) en leysir að jafnaði verkefni dagsins nokkuð sjálfstætt.
Hæfniskröfur: Bílpróf. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. Lögð er áhersla á frumkvæði, gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi.
Vinnutími: Dagvinna.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2018
Nánari upplýsingar: Ingvar Gýgjar Sigurðsson, verkefnastjóri, ingvargs@skagafjordur.is, 455-6204.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Konur, sem og karlar, eru hvattar til að sækja um.