Fara í efni

Sundlaug Sauðárkróks óskar eftir karlmanni í hlutastarf

21.08.2014

Sundlaug Sauðárkróks óskar eftir karlmanni í hlutastarf

 Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir hlutastarf í Sundlaug Sauðárkróks laust til umsóknar.

Lýsing á starfinu: Í starfinu felst meðal annars baðvarsla, þrif og afgreiðslustörf.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera eldri en 20 ára. Æskilegt að viðkomandi sé með björgunarsundpróf. Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund er kostur.
Vinnutími: Vaktavinna. Hlutastarf 42%.
Starfsheiti: Sundlaugarvörður.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar eða Öldunnar stéttarfélags.
Yfirmaður: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála.

Umsóknarfrestur er til 29. ágúst 2014

Sótt er um starfið á heimasíðu sveitarfélagsins (störf í boði) eða í íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Þorvaldur Gröndal í síma 660-4639 eða í valdi@skagafjordur.is.

Sækja um.