Fara í efni

Sundlaugin á Hofsósi

31.08.2018

 Sundlaugin á Hofsósi

 

Áhugi er fyrir því að hafa sumaropnunartíma í gildi í sundlauginni á Hofsósi út september 2018, en til þess að það geti orðið að veruleika vantar okkur að bæta við okkur góðu starfsfólki tímabundið út september.

Leitað er eftir einstaklingum sem eru ábyrgðarfullir og jákvæðir. Einstaklingum sem hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum og ríka þjónustulund. Lögð er áhersla á stundvísi, samstarfsvilja og háttvísi. Reynsla er kostur og björgunarsundpróf er æskilegt en ekki skilyrði. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. Hreint sakavottorð í samræmi við æskulýðslög er skilyrði.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband sem fyrst!!

 

Lengri opnunartími er háður því að við fáum 3-4 einstaklinga sem gætu hafið störf sem fyrst og gætu tekið tilfallandi vaktir. Allar nánari upplýsingar varðandi t.d. vinnutíma og launa- og starfskjör veitir Þorvald Gröndal, frístundastjóri, í síma 660-4639 eða með tölvupósti valdi@skagafjordur.is.