Sundlaugin á Hofsósi auglýsir hlutastarf laust til umsóknar
Sundlaugin á Hofsósi auglýsir hlutastarf laust til umsóknar
Upphaf starfs: 27. september 2017, eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall: 45% starfshlutfall.
Starfsheiti: Sundlaugarvörður.
Lýsing á starfinu: Starfið felst m.a. í öryggisgæslu við sjónvarpsskjá og laug, auk eftirlits með öryggiskerfum, ásamt afgreiðslu og baðvörslu. Starfið felur í sér mikil samskipti við börn og fullorðna. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.
Menntunarkröfur: Æskilegt er að umsækjendur séu með björgunarsundpróf og hafa lokið námskeiði í skyndihjálp.
Hæfniskröfur: Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, þjónustulipurð og hafi metnað til að láta gestum líða vel. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi. Reynsla er kostur. Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
Vinnutími: Vaktavinna.
Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 24. september 2017
Nánari upplýsingar: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála, í síma 660-4639 eða valdi@skagafjordur.is.
Umsóknir: Umsóknum ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.