Sundlaugin á Hofsósi lokar tímabundið vegna framkvæmda
19.03.2021
Sundlaugin á Hofsósi verður lokuð frá og með mánudeginum 22. mars nk. vegna viðhaldsframkvæmda. Stefnt er að opnun laugarinnar aftur mánudaginn 17. maí. Verði einhverjar breytingar á fyrirhuguðum verklokum, verður það auglýst síðar.
Sundlaugarnar á Sauðárkróki og í Varmahlíð eru opnar sem hér segir:
Sundlaug Sauðárkróks:
Mánudaga - fimmtudaga kl 06:50 - 20:30
Föstudaga kl 06:50 - 20:00
Laugardaga og sunnudaga kl 10:00 - 16:00
Sundlaugin í Varmahlíð:
Mánudaga - fimmtudaga kl 08:00 - 20:30
Föstudaga kl 08:00 - 14:00
Laugardaga og sunnudaga kl 10:00 - 16:00