Sundlaugin á Hofsósi - sumaropnun
19.05.2015
Með hækkandi sól og auknum lofthita hitnar einnig í kolunum hjá ferðaþjónustaðilum í firðinum. Nú er víðast hvar starfsemin að komast á gott skrið; tjaldstæði, kaffihús, og veitingastaðir að opna eftir vetrardvalann. Sundlaugin á Hofsósi fór yfir í sumaropnun í gær og er nú opin alla daga frá 09:00-21:00. Hinar laugarnar skipta yfir í sumaropnun þann 01. júní.