Sundlaugin í Varmahlíð opin á ný
04.01.2023
Sundlaugin í Varmahlíð er komin í fullan rekstur frá og með deginum í dag, en eins og kom fram hér áður þurfti að loka lauginni tímabundið vegna skorts á heitu vatni vegna mikillar kuldatíðar.
Við biðjumst velvirðingar á þeim lokunum sem búnar eru að vera undanfarna daga.