127 milljón króna rekstrarafgangur árið 2014
Ársreikningur ársins 2014 var samþykktur við síðari umræðu í sveitarstjórn í gær. Niðurstaða rekstrar A og B hluta sveitarsjóðs er jákvæð um 126,7 milljónir króna. Lagðar voru fram þrjár bókanir um ársreikninginn og má finna þær hér í fundargerð sveitarstjórnar.
Rekstrartekjur voru í heildina 3,9 miljarðar króna og hækkuðu þær aðeins um 0,8% á milli ára. Rekstrarútgjöld önnur en fjármagnsliðir hækkuðu um 9,3% og námu samtals 3,6 milljörðum króna. Laun og launatengd gjöld voru 2.105 milljónir króna á árinu 2014 og hækkaði þessi rekstrarliður um 6,4% frá árinu 2013 sem rekja má til kjarasamningshækkana launa.
Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu á árinu 2014, 471 millj. króna, þar af námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 482 millj. króna. Afborganir langtímalána námu 525 millj. króna, handbært fé lækkaði um 62 millj. króna á árinu og nam það 12 millj. króna í árslok. Tekin ný langtímalán og skuldbreytingar voru að fjárhæð 1.011 millj. króna.
Skuldir og skuldbindingar voru í árslok 2014 samtals 5.617 millj. króna, þ.a. hjá A hluta 4.330 millj.króna. Langtímaskuldir námu alls 3.343 millj.króna hjá A og B hluta auk 697 millj.króna næsta árs afborgana. Eigið fé nam 1.687 millj. króna hjá samstæðunni í árslok og eiginfjárhlutfall 23%. Af þessari tölu nam eigið fé A hluta 1.153 millj. króna og eiginfjárhlutfall 21%. Lífeyrisskuldbindingar nema 950 millj.króna í árslok og hækkuðu á árinu um 70 millj.króna nettó vegna aukinna lífeyrisréttinda.
Í 64.gr. nýrra sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að heildarskuldir og skuldbindingar A og B hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. megi ekki vera hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Frá heildarskuldum og skuldbindingum er heimilt að draga frá hluta lífeyrisskuldbindinga sem og tekjur og skuldir veitna. Hjá Sveitarfélaginu Skagafirði er skuldahlutfall í ársreikningi fyrir árið 2014, 143% án þess að dreginn sé frá sá hluti af heildarskuldum og skuldbindingum sem heimilað er.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2014
Greinargerð sveitarstjóra vegna ársreiknings 2014